Sleppti rúmlega heilu blogg-ári!
Mikið hefur nú gerst síðustu 365 + eitthvað marga daga. Ætla ekki að fara út í það allt, enda tæki það allt allt allt of langan tíma.
Samt sem áður hefur lítið breyst, I'm still single and fabulous! :) er að vísu farin að vinna aftur á geðdeildinni sem ég var áður en það er bara fínt...
Eeeennnnn lífið breytist eftir nákvæmlega 19 daga og ég hlakka svo til! Ætlaði ekki að segja neinum neitt en það er bara svo erfitt að þegja í svona langan tíma þegar eitthvað spennandi er að gerast svo ég blaðraði í nokkra vel valda en ég geri mér grein fyrir að þegar þrír vita, þjóð veit! Nema náttúrlega afsannaðist þetta í Icesave og bankamálinu. Ætti í raun að vera 30 þegja, þjóð screwed!
En hey! nenni ekki að hafa þetta lengra í bili... mun blogga eftir 19 daga og þá kemur í ljós hvers vegna ég er að telja niður... ekki missa af því þið sem lesið ekki bloggið mitt :)
Sigteigur eða Sigtún?
Ég bað um frystingu bílaláninu mínu 4. nóvember, beið lengi í símanum hjá SP fjármögnun til að láta segja mér að ég ætti að gera þetta á netinu. Ok, ég ræsti tölvuna sem tekur góðar 14 mínútur, og fletti síðunni sp.is. Svo finn ég engann link sem segir "frysting á bílalánum" eða eitthvað þvíumlíkt. Fann það ekki og ekkert sem benti í áttina eða leiðbeinti mér. Svo ég hringdi aftur í Sp-fjármögnun. Beið í dágóða stund eftir að einhver svaraði. Fékk svo að vita það að ég gæti fryst þetta bara á netinu svo ég sagðist vera búin að athuga það og ég fyndi ekki síðuna. Svo mér var sagt að hún kæmi ekki upp nema ég myndi skrifa sp.is/vextir... Mátti ekki segja manni þetta eitthvað fyrr?
Síðan fékk ég þær upplýsingar að ég ætti að skoða tölvupóstinn þar sem að ég myndi fá staðfestingu á frystingunni. Samdægurs fékk ég tölvupóst um að beiðni mín um frystingu hefði verið móttekin og yrði skoðuð með tilliti til hvers og eins.
21. nóvember fékk ég svo annan tölvupóst með hellings upplýsingum og skilmálum um frystinguna og pappíra sem ég átti að skrifa undir, fá ábyrgðarmann til að skrifa undir, og fá tvo votta til að skrifa undir. Ok, ég prentaði þetta samviskusamlega út á kostnað vinnunnar, skrifaði undir, fékk mömmu til að skrifa undir og reddaði einum votta til að skrifa líka. Síðan fór ég í vinnuna í morgun og gleymdi plagginu heima. Fékk þá fyrir náð deildarstjórans að fara klukkan 15 en ekki 16 úr vinnunni til að ná að skila þessu inn fyrir fjögur og lenda ekki í umferðinni.
Áður en ég fer úr vinnunni þá athuga ég hvar SP-fjármögnun er til húsa. Sigtún 42. Svo ég bruna heim en á leiðinni hringi ég í mömmu til að fá upplýsingar um það hvar Sigtúnið er eiginlega. Hún segir mér að það sé rétt hjá Fíladelfíu kirkjunni og þar sem Nótún er. Svo ég legg af stað að heiman með hundinn bundinn í beltið sitt í aftursætinu og plaggið góða í hendinni.
Svo þegar ég var komin niðureftir og keyrði nóatúnið fann ég Hátún, Sóltún, Miðtún, Borgartún, Mávatún, Samtún, Sætún, Skúlatún og Höfðatún. Ekkert Sigtún! Ég hélt að mér væri að yfirsjást eitthvað svo ég keyrði hring eftir hring eftir hring og alltaf sá ég Nóatún, Hátún, Sóltún, Miðtún, Borgartún, Mávatún, Samtún, Sætún, Skúlatún og Höfðatún. EKKERT SIGTÚN! 40 mínútum seinna játaði ég mig sigraða og hringdi rosalega pirruð í 118. Enda var ég að renna á tíma, þurfti að skila þessu plaggi fyrir kl 16. Ég spurði orðrétt hvar á þessari plánetu Sigtún væri eiginlega því að ég væri búin að finna öll tún í þessu sólkerfi. Hún sagði að í kringum Sigtún væri Laugateigur og Engjateigur og Gullteigur og taldi upp hellings götur sem hétu eitthvað teigur. TEIGUR? ég var að leita að TÚNI svo ég spurði hvar í ósköpunum teigarnir væru eiginlega en Idiotið sem ég er fattaði ekki að ég átti heima á Hraunteig! Svo ég veit vel hvar teigarnir eru. Hún útskýrði fyrir mér að þegar ég hefði keyrt Kringumýrarbrautina þá hefði ég átt að keyra niðurfyrir Suðurlandbrautina og beygja þar sem Grand hótel er. Sigtún er nefnilega ekkert í túnunum! Það er í TEIGUNUM! Ég þakkaði henni fyrir þetta og hún flissaði svona aðeins í símann, svona eins og þegar maður er að halda í sér hlátrinum, svo skellti ég á og dreif mig yfir gatnamótin hjá Nóatúni og Laugarvegi nema bíllinn fyrir framan mig fór ekki af stað og klukkan var 6 mínútur í 16. Ég vissi að ég ætti ábyggilega eftir að leita að Sigtúninu hinu megin líka svo ég öskraði á bílinn fyrir framan mig "Drullaður þér yfir, það er grænt!" Nema svo heyri ég hlátur í símanum og þá hafði handfrjálsi búnaðurinn eitthvað klikkað og ég var enþá með konuna hjá 118 í símanum!
Alveg týpískt ég! Ég skellti á og drullaði mér yfir gatnamótin...
Síðan er ég var komin hinu megin þá sá ég engar merkingar neinstaðar svo ég hugsaði Guð minn ég næ þessu ekki fyrir kl 16. Svo er ég að keyra og er að pirra mig á því að ég sé hvergi SP-fjármögnun og ég keyri eins og mad woman þarna um Sigtúnið. Svo allt í einu tók ég eftir þremur eða fjórum RISA fánum sem stóð á SP-fjármögnun! Hefði ekki geta verið auðveldara að sjá það en það fór alveg framhjá mér. Ég náði í tíma og hló svo að þessu öllu á leiðinni heim...
Hvaða fáviti í skipulagningarnefnd gatnakerfis Reykjavíkur, ef það er til, skipulagði þetta? Ég er viss um að hann er í Pent-House á Grand Hóteli og fylgist með öllum bjánunu leita að Sigtúni í túnunum. Ég get allavega sagt eitt, ég er rosalega þakklát fyrir 118 

